11. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn miðvikudaginn 11. nóvember 2020 kl. 15:00


Mætt:

Páll Magnússon (PállM) formaður, kl. 15:00
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 1. varaformaður, kl. 15:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) 2. varaformaður, kl. 15:08
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 15:00
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 15:05
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 15:00
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 15:00
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 15:00
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ), kl. 15:00

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir vék af fundi kl. 15:50. Ólafur Þór Gunnarsson sat fundinn fyrir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur frá kl. 16:05. Steinunn Þóra Árnadóttir vék af fundi kl. 16:00-16:55.

Nefndarritari: Elisabeth Patriarca Kruger

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 1. október sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 15:00
Fundargerð 10. fundar var samþykkt.

2) Fræðsla og menntun lögreglumanna og merkingar á lögreglufatnaði Kl. 15:00
Nefndin ræddi við Eyrúnu Eyþórsdóttur lektor í lögreglufræðum og Margréti Valdimarsdóttur lektor í lögreglufræðum. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Einnig ræddi nefndin við Snorra Magnússon frá Landssambandi lögreglumanna. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Þá ræddi nefndin við Sigríði Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóra og Ólaf Örn Bragason frá ríkislögreglustjóra, og Höllu Bergþóra Björnsdóttur lögreglustjóra og Ásgeir Þór Ásgeirsson frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Að lokum ræddi nefndin við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra, Rögnu Bjarnadóttur og Silju Rán Agnarsdóttur frá dómsmálaráðuneyti. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Önnur mál Kl. 17:20
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 17:20